Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 11. nóvember 2025 ásamt kæru nr. 169/2025, dags. 31. október 2025, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar steyptan garðvegg og álagningu dagsekta. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 22. desember 2025. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 27. febrúar 2026. Úrskurðarorð: Felld er úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 3. október 2025 um að afturkalla ekki þá ákvörðun embættisins frá 2. júlí 2025 að gera kærendum að færa steyptan garðvegg á lóð þeirra til fyrra horfs. Felld er úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 16. október 2025 um álagningu dagsekta að upphæð 25.000 kr. vegna garðveggjar á lóð Bergstaðastrætis 78.