Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 3 dögum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1079
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. september 2026 var lagt fram bréf Hús­­næðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, dags. 31. ágúst 2026, þar sem ekki er gerð athugasemd við birtingu auglýsingar um samþykkt deiliskipulagsbreytingarinnar í B-deild Stjórnartíðinda þegar brugðist hefur verið við atriðum í bréfi stofnunarinnar er varða samræmi við Aðalskipulag Reykjavíkur 2040, Borgarlínu og samgöngumiðuð þróunarsvæði, umhverfis­mat og ljósvist, auk annarra atriða. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 15. september 2026, uppfærðum deiliskipulags- og skýringaruppdráttum Nordic Office of Architecture, dags. 13. apríl 2026, br. 7. september 2026 og greinargerð Nordic Office of Architecture, dags. 13. apríl 2026, br. 7. september 2026. Lagt fram.