Mýrargata 41 – breytingaerindi
Mýrargata 41 – breytingaerindi
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 vikum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1243
10. febrúar, 2026
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN060025 vegna lokaúttektar þannig að bætt er við hurð út á svalir íbúðar 0507 í fjölbýlishúsi við Mýrargötu 41, mhl.01 á lóð nr. 64 við Vesturgötu. Erindi fylgir ódagsett umsögn burðarvirkishönnuðar, samþykki stjórnar húsfélagsins Vesturvin ehf. dags. 14. janúar 2026 og yfirlit breytinga á aðaluppdrætti samþykktum 22. febrúar 2022.
Svar

Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.