Frestað. Vísað til athugasemda.
65. Þverholt 18 - BN059059
Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa nr. 1136 21. nóvember 2023 var samþykkt umsókn um
leyfi til að innrétta 26 nýjar íbúðir með aðkomu frá Þverholti, með geymslum og
vinnustofum á jarðhæð skrifstofu- og atvinnuhúsnæðis (mhl.01) á lóðinni Þverholt 18,
landeignanúmer 103175. Stækkun 704.5 ferm, 955.8 rúmm, stærð hjólaskýlis 11.1 ferm,
28,9 rúmm. Byggingarleyfi var útgefið 26. mars 2025.
Í ljós hefur komið að þegar byggingarleyfi var veitt var liðið meira en ár frá framkvæmd
grenndarkynningu, en hún fór fram í ágúst 2023.
Ákvörðun byggingarfulltrúa dags. 26. mars 2025, um að veita byggingarleyfi er því haldin
ógildingarannmarka og áformar byggingarfulltrúi því að fella hana úr gildi, og bæta úr
annmarkanum með því að láta nýja grenndarkynningu fara fram. Byggingarfulltrúi áformar
einnig að stöðva framkvæmdir í kjölfar niðurfellingar byggingarleyfis.
Fundi slitið kl. 14:50
Brynjar Þór Jónasson
Edda Þórsdóttir
Sigrún Reynisdóttir
Silvá Kjærnested
Dagný Geirdal
Böðvar Páll Jónsson
Guðbjörg Sigríður Snorradóttir