Vogabyggð 1 - Breyting á deiliskipulagi - Stefnisvogur 1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 vikum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1046
27. janúar, 2026
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Hjalta Brynjarssonar, dags. 30. október 2025, um breytingu á deiliskipulagi Vogabyggðar svæðis 1 vegna lóðarinnar nr. 1 við Stefnisvog. Í breytingunni sem lögð er til felst að íbúðum fjölgar, byggingarmagn neðanjarðar eykst, bílastæðum fjölgar, innkeyrslum fjölgar og bætt er við skábraut á borgarlandi, samkvæmt uppdr. Nordic Office of Architecture, dags. 29. október 2025. Tillagan var auglýst frá 4. desember 2025 til og með 20. janúar 2026. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.