Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN059830 vegna lokaúttektar þannig að innra skipulagi er breytt
lítillega og brunavörnum og brunamerkingum er breytt, jafnframt er óskað eftir smávægilegum
lóðabreytingum til að koma fyrir tröppum með fram húsinu við Bolholt 7-9, mhl.02 á lóð nr. 1 við
Háaleitisbraut.
Erindi fylgir bréf til byggingarfulltrúa dags. 19. september, greinargerð hönnuðar dags. 30. september
og yfirlit breytinga á aðaluppdráttum samþykktum 19. október 2021.