Hálsahverfi - Breyting á deiliskipulagi - Járnháls 4
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 vikum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 1048
10. febrúar, 2026
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. desember 2025 var lögð fram umsókn Eikar fasteignafélags hf. , dags. 27. október 2025, um breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna lóðarinnar nr. 4 við Járnháls. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að hækka tveggja hæða nýbyggingu um 1,5m; úr 9m í 10,5m, samkvæmt uppdr. Noland, dags. 23. október 2025. Einnig er lagt fram skuggavarp Noland, dags. 23. október 2025. Erindi var samþykkt í grenndarkynningu og er nú lagt fram að nýju.
Leiðrétt bókun frá fundi skipulagsfulltrúa 22. desember 2025.
Rétt bókun er: Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Járnhálsi 2, Hesthálsi 2-4, Krókhálsi 1, 3, 5, 5A, 5B, 5C, 5D, 5E, 5F og 5G.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. gr. 7.6 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1381/2024.
Svar

Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. gr. 7.6 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1381/2024.