Fyrirspurn
Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 2. desember 2025 var samþykkt umsókn, dags. 23.
október s.l., um byggingarleyfi fyrir tveimur færanlegum kennslustofum auk
tengibyggingar, mhl. 02, 03 og 04 í notkunarflokki 5, sem mun hýsa 24 börn og 5
starfsmenn á lóð nr. 17 við Hlaðbæ. Byggingarleyfi var gefið út 13. janúar 2026.
Hverfisskipulag fyrir Ártúnsholt, Árbæ og Selás, sem öðlaðist gildi við birtingu í B-deild
Stjórnartíðinda 5. nóvember 2019, gildir fyrir lóðina nr. 17 við Hlaðbæ.
Með úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. UUA2602024, dags.
4. maí 2026, var ákvörðun byggingarfulltrúa frá 2. desember 2025, um að samþykkja
umsókn um byggingarleyfi fyrir tveimur færanlegum kennslustofum auk teng-byggingar á
lóð nr. 17 við Hlaðbæ, felld úr gildi. Taldi úrskurðarnefndin að byggingarfulltrúa hefði borið
að gefa íbúum sem eiga lögvarða hagsmuni kost á að kynna sér gögn málsins og koma
sjónarmiðum sínum á framfæri áður en ákvörðun um útgáfu byggingarleyfisins var tekin
skv. 13. og 14. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Í samræmi við niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar hyggst byggingarfulltrúi gefa lóðarhöfum
sem eiga lögvarða hagsmuni kost að tjá sig um efni umsóknar um byggingarleyfi áður en
umsóknin verður tekin til afgreiðslu á ný, sbr. 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.