Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Lagt er til að ráðist verði í viðgerðir á ljósastaurum við Hverfisgötu. Að minnsta kosti 35 götulampar eru óvirkir við götuna, einkum á eystri hluta hennar. Þá eru þrír götulampar óvirkir á Snorrabraut, á kaflanum milli Hverfisgötu og Laugavegar.