Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK23110213 þannig að 7. hæð er stækkuð til austurs, innra
skipulagi er breytt og herbergjum fjölgað um sjö þannig að samtals verða 177 herbergi í hóteli á lóð
nr. 176 við Laugaveg.
Stækkun: 301,4 ferm., 1.485,2 rúmm.
Eftir stækkun: 10.549,8 ferm., 36.540,7 rúmm.
Erindi fylgir yfirlit breytinga, brunahönnun frá COWI dags. 17. október 2025 og bréf hönnuðar
með skýringum dags. 15. október 2025.