Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og innrétta veitingasölu í flokki 1 tegund D, með 2-4
starfsmönnum og biðsvæði fyrir 5-20 viðskiptavini í rými 0103 í verslunar- og íbúðarhúsi, mhl.01, á
lóð nr. 12 við Grensásveg.
Erindi fylgir yfirlit breytinga á aðaluppdráttum samþykktum 28. ágúst 2007.
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.