Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Ábendingar hafa borist um að mikil brögð hafi verið að því að undanförnu að íbúar í miðborginni, með greidd og gild íbúakort, hafi ítrekað verið sektaðir að ósekju á kortasvæði sínu af Bílastæðasjóði. Óviðunandi er að borgarar þurfi ítrekað að verja tíma og fyrirhöfn í að verjast slíkri ásókn og leiðrétta ranga álagningu umræddrar borgarstofnunar, ef rétt er. Óskað er eftir skýringum á þessum vinnubrögðum og hvort gripið verði til ráðstafana í því skyni að koma í veg fyrir slík mistök framvegis. Einnig er óskað eftir upplýsingum um fjölda beiðna til Bílastæðasjóðs á árinu frá handhöfum íbúakorta, um endurupptöku ákvörðunar vegna álagningar stöðvunarbrotagjalds/aukastöðugjalds, ásamt samanburði við fyrri ár. Jafnframt er óskað eftir upplýsingum um heildarfjölda beiðna til Bílastæðasjóðs á árinu um endurupptöku ákvörðunar vegna álagningar stöðvunarbrotagjalds /aukastöðugjalds, ásamt samanburði við fyrri ár.