Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 10. febrúar 2026, með vísan til a. liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna gegn 3 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna:
Útgáfa byggingarleyfis til innanhúss breytinga fyrir veitingastað í flokki I á Grensásvegi 46 samræmist að öllu leyti gildandi aðalskipulagi Reykjavíkurborgar. Í ljósi þess er umsókn umsækjanda vísað aftur til byggingarfulltrúa til fullnaðarafgreiðslu. Umhverfis- og skipulagsráð starfar samkvæmt samþykktum borgarstjórnar og er í umboði borgarráðs og fer eftir skipulagslögum nr. 123/2010, sbr. 6. gr. laganna og eftir því sem lög mæla fyrir um s.s. sveitarstjórnarlög nr. 138/2011. Það myndi ekki teljast góð stjórnsýsla að synja frjálsum félagasamtökum um leyfi til að breyta húsnæði eins og aðalskipulag gerir ráð fyrir. Eftir byggingaleyfisveitingu og framkvæmdir þarf að fara fram lokaúttekt byggingarfulltrúa og að henni lokinni er það Heilbrigðiseftirlitið sem gefur út starfsleyfi og sýslumaður gefur út rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki I. Málið kemur því ekki aftur til afgreiðslu í umhverfis- og skipulagsráði.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins lýsir stuðningi við mikilvægt og faglegt starf Samhjálpar, sem er dýrmæt stoð fyrir marga. Hins vegar vekur áhyggjur að ekki hafi tekist að ná nægilegri sátt við íbúa í nágrenni og að fyrirhuguð starfsemi falli illa að umhverfi þar sem mikið er um börn. Þá er ljóst að staðsetningin er utan þess svæðis þar sem gestir Samhjálpar halda sig að jafnaði, sem getur torveldað aðgengi þeirra. Mikilvægt er að finna lausnir sem þjóna bæði nærumhverfi og notendum betur.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Framsóknarflokksins:
Framsókn harmar það að meirihlutinn hunsi áhyggjur íbúa í nágrenni Grensásvegar 46 vegna fyrirhugaðrar opnunar á kaffistofu Samhjálpar. í grenndarkynningarferlinu bárust hátt í 40 athugasemdir frá íbúum. Í athugasemdunum koma bersýnilega í ljós að nágrannar hafa miklar áhyggjur af þessari þróun sérstaklega m.t.t. hagsmuna barna og að þessi starfsemi samrýmist því ekki umhverfinu. Grensásvegur 46 er sannarlega staðsettur inn í miðju íbúahverfi ólíkt fyrri staðsetningu kaffistofunnar sem hingað til hefur verið miðsvæðis í borginni þar sem það þjónar hagsmunum skjólstæðinga betur vegna nálægðar. Einnig má benda á að ekki er leyfi í aðalskipulagi fyrir veitingahús í flokki III á þessum stað nema með breytingu í deiliskipulagi eða hverfisskipulagi. Þung rök liggja fyrir því að kaffistofa Samhjálpar falli undir skilgreiningu veitingahús í flokki III þar sem um er að ræða starfsemi sem kallar á meira eftirlit og/eða aðkomu löggæslu og erum við því ósammála mati skipulagsfulltrúa. Hvað sem því líður þá kemur það á óvart að þeir flokkar sem mynda núverandi meirihluta og tala hve hæst um aðkomu íbúa að sínu umhverfi og að þörf sé á meira íbúalýðræði, kjósa að hlusta ekki á áhyggjur íbúa sem bæði hafa haldið fjölmennan fund og eins komið hefur fram áður sent inn gríðarlegan fjölda af athugasemdum.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Viðreisnar:
Málefni er varða Grensásvegi 46 snertir á mörgum og margar hliðar að rýna. Hafa íbúar lýst áhyggjum af því að hafa móttöku eldhúsið í nágrenni við fjölda barna á grunnskólaaldri daglega. Mikilvægt er að breytingar sem þessar séu gerðar í sátt við nærumhverfi þykir fulltrúa Viðreisnar því miður ekki hafa farið vel á þeirri sátt. Þess ber að geta að starf Samhjálpar er faglegt og mikilvæg stoð í samfélagsþjónustu og virkilega ánægjulegt að sjá þeirra faglega starf. Einnig er vert að huga að þörfum þeirra sem koma til með að nýta eldhúsið en er staðsetningin í verulegri fjarlægð frá þeirra dvalarstöðum og er miður að borgin hafi ekki stigið inn og leitað allra leiða við að finna staðsetningu sem þjónustar hópinn betur þrátt fyrir ósk Samhjálpar. En samkvæmt upplýsingum umsækjenda er staða væntra gesta sú að þeir fá ekki að nota almenningssamgöngur og því ljóst að fjarlægðin er veruleg og því stór galli á þessari samfélagsþjónustu. Ástæða þess að fulltrúinn kýs gegn þessari aðgerð er að þörfum þjónustuþegar sé illa mætt með þessari aðgerð, staðsetning hentar þeim illa og ber að huga að því að þess má vænta að notenda hópurinn sé ekki virkur í samráðsferli vegna stöðu sinnar.