Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 vikum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 366
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 13. október 2025 ásamt kæru nr. 155/2025, dags. 11. október 2025, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjavíkur hinn 25. ágúst 2025 um útgáfu byggingarleyfis fyrir áður gerðum breytingum á fasteigninni að Snorrabraut 29. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 11. nóvember 2025.