Rafstöðvarvegur 7
Rafstöðvarvegur 7
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 mánuði síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1239
13. janúar, 2026
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess byggja leikskóla á tveimur hæðum fyrir um alls 130 börn og 40 starfsmenn á lóð nr. 7 við Rafstöðvarveg. Stærð: 1.797.9 ferm., 6.510,8 rúmm. Erindi fylgir hæðarblað dags. júní 2012, mæliblað 4.252.6 dags. 9 febrúar 2016 og greinargerð Örugg verkfræðistofu um brunahönnun útg. V02 dags. 14. nóvember 2025 og kvittun Lífsferilsgreiningar dags. 3. desember 2025
Svar

Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera
lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr.
greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í
samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á
byggingarstað.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing er gerð þar sem verið er að auka byggingarmagn á lóð þar
sem þegar er fyrir fjöleignarhús. Hlutfall í lóð mun taka breytingum. Eignaskiptayfirlýsandi þarf að
senda staðfestingu á að byrjað sé að gera eignaskiptayfirlýsingu á
eignaskiptayfirlysing@reykjavik.is fyrir útgáfu byggingarleyfis. Þinglýsa þarf
eignaskipatyfirlýsingu fyrir lokaúttekt.