Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. febrúar 2026 þar sem sótt er um leyfi til að fjölga eignum með því að byggja nýja hæð og innrétta sem íbúð ofan á einbýlishús á lóð nr. 14 við Tunguveg. Tillagan var grenndarkynnt frá 24. mars 2026 til og með 28. apríl 2026. Athugasemdir bárust. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 12. maí 2026 og er nú lagt fram að nýju. Lagt er fram svar skipulagsfulltrúa við athugasemd fasteignaeiganda að Rauðagerði 55, dags. 28. apríl 2026. Í svari skipulagsfulltrúa kemur fram að í kjölfar athugasemdarinnar óskaði skipulagsfulltrúi eftir því að umsækjandi léti vinna nýtt hæðarblað fyrir lóðina og skilaði í kjölfarið uppfærðum uppdráttum. Lagðir fram uppfærðir uppdrættir Stáss arkitekta, teikningasett aðaluppdrátta dags. 15. september 2025, breytt 4. ágúst 2026. Einnig lagðir fram nýjar skuggavarpsteikningar, dags. 28. júlí 2026, götuásýnd og sneiðmynd, dags. 4. ágúst 2026 og bréf hönnuðar, dags. 4. ágúst 2026. Skipulagsfulltrúi telur eðlilegt að uppfærð og ný gögn verði send til nýrrar grenndarkynningar.