Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 354
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um viðgerðir á biðsvæði strætó í Mjódd, sbr. 24. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 17. september 2025.
Svar

Vísað til meðferðar í stýrihóp Mjóddar. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja til óþurftar að vísa tillögu um úrbætur í Mjódd til stýrihóps. Umræddur stýrihópur hefur haft málefni skiptistöðvarinnar í Mjódd til umfjöllunar mánuðum saman án þess að nokkuð hafi gerst. Hér þarf að ráðast í framkvæmdir og láta verkin tala í stað þess að senda málefni Mjóddarinnar enn einu sinni í stýrihóp til skrafs og ráðagerða.