Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 352
Frestað
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins: Lagt er til að minnismerki um Gunnar Gunnarsson rithöfund verði komið fyrir í Gunnarsbrekku. Brekkan er í lóðinni Laugarásvegi 59, sem var áður eignarlóð við Dyngjuveg 8 þar sem Gunnarshús stendur. Áhersla verði lögð á að minnismerkið verði vel staðsett, t.d. neðan við trjálund sem þarna er, og skerði ekki notagildi brekkunnar, sem vinsæls leiksvæðis og sleðabrautar barna og ungmenna í hverfinu. Setubekk verði komið fyrir við minnismerkið.
Svar

Frestað.