Tillögunni er vísað frá með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna gegn 2 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Fulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Vinstri grænna og áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:
Málið er í góðri skoðun til að finna bestu og hagkvæmustu útfærsluna fyrir grenndargáma í hverfinu. Ekki er gott að útiloka einhvern stað að svo stöddu. Tillögunni er því vísað frá.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Mikil andstaða og ónægja hefur verið meðal íbúa í Ártúnsholti með færslu grenndargáma úr Straumi yfir í Streng sem kynnt var í hverfisskipulagi Árbæjarhverfis árið 2019. Íbúar gerðu þá strax athugasemdir við nýja staðsetningu gámanna án þess að tekið hefði verið tillit til þess. Óánægja og áhyggjur íbúa helgast ekki síst af því að fyrirhuguð staðsetning við Streng er í miðju hverfinu nánast við hliðina á tveimur leikskólum og grunnskóla en grenndargámum fylgir gjarnan aukin umferð og sóðaskapur. Fyrirhuguð staðsetning mun því draga verulega úr umferðaröryggi gangandi og hjólandi vegfarenda einkum og sér í lagi barna sem þurfa að þvera götuna á leið sinni til og frá skóla. Það veldur íbúum miklum vonbrigðum að ekkert samráð hafi verið haft við þá og íbúalýðræði ekki virt varðandi nýja staðsetningu fyrir grenndargámana. Ljóst er að engin andstaða er við núverandi staðsetningu gámanna við stórbílastæðið við Straum. Það liggur því beinast við að fallið verði frá hugmyndum um færslu þeirra og þeir staðsettir til framtíðar á núverandi stað við Straum. Staðsetningin er mjög heppileg með tilliti til umferðaröryggis enda er þar til staðar bæði hraðahindrun og gönguþverun fyrir gangandi vegfarendur.