Fyrirspurn
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Framsóknarflokksins um skammtíma sleppistæði, sbr. 21. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 3. september 2025. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu samgangna og borgarhönnunar, dags 1. október 2025.
Tillaga felld með vísan til umsagnar skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 1. október 2025 með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokki fólksins gegn 3 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sem greiða atkvæði með tillögunni.