Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 3. mars 2026 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og innrétta kennslurými fyrir Kvikmyndaskóla Íslands, til að byggja yfir loftræsisamstæður á suðurhlið, breyta gluggum og gera nýja útganga og sameina í eina eign atvinnuhús á lóð nr. 4 við Vatnagarða. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 27. maí 2026.
Svar
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 27. maí 2026. Samræmist ekki deiliskipulagi.