Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. september 2025 var lögð fram fyrirspurn
Kanon arkitekta ehf.
, dags. 27. ágúst 2025, ásamt greinargerð dags. 26. ágúst 2025, um breytingu á deiliskipulagi Vogabyggðar svæðis 2 vegna lóðanna nr. 8 við Kleppsmýrarveg og 2 við Bátavog sem felst í sameiningu lóðanna tveggja og uppbyggingu nýrrar íbúðarbyggðar, samkvæmt fyrirspurnartillögu Kanon arkitekta, dags. 26. ágúst 2025. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 4. nóvember 2025.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 4. september 2025, samþykkt.