Síðast Vísað til borgarráðs á fundi fyrir 14 klukkutímum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 390
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Betula landslagsarkitekta ehf. dags. 14. ágúst 2025, um nýtt deiliskipulag fyrir lóðina að Langavatnsvegi 3. Skipulagssvæðið er staðsett norðvestan við Langavatn í austurjaðri sveitarfélagsmarka Reykjavíkur. Í tillögunni sem lögð er til felst að koma fyrir ferðaþjónustu og útisvæði á lóðinni, en afmarkað er svæði fyrir ferðaþjónustu, tjaldsvæði, húsbíla og leiksvæði á lóðinni, auk byggingarreita fyrir starfsmannahús og þjónustuhús. Verða innviðir sem svæðið hefur upp á að bjóða nýttir, eins og vegir sem eru til staðar og gróður, ásamt því að leitast verður við að tengja svæðið við nálæg svæði til útivistar, samkvæmt uppdr. Betula landslagsarkitekta ehf., dags. 28. apríl 2025, br. 21. september 2026. Einnig er lögð fram greinargerð Betula landslagsarkitekta ehf., dags. 23. apríl 2026, br. 21. september 2026. Deiliskipulagið er unnið í samræmi við rammaskipulag Austurheiða. Tillagan var auglýst frá 4. júní 2026 til og með 16. júlí 2026. Athugasemdir og ábendingar bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 21. september 2026.
Svar

Samþykkt sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með þeim breytingum sem koma fram í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. september 2026.
Vísað til borgarráðs.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihlutinn fagnar því að lóðarhafar Langavatnsvegar 3 hyggist ráðast í uppbyggingu á svæðinu og skapa þar nýja aðstöðu fyrir ferðaþjónustu og útivist. Uppbygging af þessu tagi getur aukið fjölbreytni í útivistar- og ferðaþjónustu í Reykjavík og skapað aukin tækifæri til að nýta þetta fallega útivistarsvæði. Jafnframt leggur meirihlutinn áherslu á að leyst verði með fullnægjandi hætti úr færslu þeirrar mikilvægu reiðleiðar sem nú liggur um lóðina, þannig að samfella og öryggi reiðleiðakerfisins verði tryggt. Reiðleiðin er hluti af samfelldu reiðleiðakerfi höfuðborgarsvæðisins og gegnir mikilvægu hlutverki fyrir hestamennsku og útivist á svæðinu. Meirihlutinn telur því mikilvægt að áfram verði unnið að útfærslu nýrrar legu í góðu samráði við hestamenn og aðra hagaðila, samhliða framgangi uppbyggingarinnar. Jákvætt er að þegar hefur verið fundað með fulltrúum Fáks og að nokkrir valkostir um nýja legu reiðleiðarinnar verði teknir til skoðunar.