Tillögunni er vísað frá með fjórum atkvæðum Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins gegn tveimur atkvæðum Sjálfstæðisflokksins. Fulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.
Fulltrúar Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Eins og fram kemur í umsögn ganga þessar framkvæmdir út á að bæta umferðaröryggi og flæði með snjöllustu umferðarstýringu sem völ er á. Nú eru framkvæmdir að klárast og því ekki unnt né ástæða til að sveigja af leið að svo stöddu. Framkvæmdir hafa skapað tafir á svæðinu en þegar þeim er lokið og ljósin hafa verið tekin í notkun eiga aðstæður að batna til muna.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Ófremdarástand ríkir á gatnamótum Höfðabakka og Bæjarháls eftir að gatnamótin voru þrengd og tveimur beygjuakreinum lokað. Breytingin hefur í för með sér umferðaröngþveiti á gatnamótunum og stórauknar umferðartafir á stóru svæði í austurhluta borgarinnar. Breytingin virðist hafa verið gerð í því skyni að tefja vísvitandi fyrir umferð. Unnt er að stórbæta öryggi gangandi og hjólandi á gatnamótunum án þess að þrengja þau og fjarlægja umræddar beygjuakreinar. Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs 26. mars 2025 lögðust borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins gegn því að umræddar beygjuakreinar yrðu fjarlægðar og bentu á að slík breyting myndi draga úr umferðarflæði og valda óþarfa töfum á umferð. Um leið og beygjuakreinunum var lokað jukust umferðartafir gífurlega á gatnamótunum og þar er nú hreinasta umferðaröngþveiti á annatímum. Slíkt ástand er óviðunandi og því hafa fulltrúar Sjálfstæðisflokksins lagt fram tillögu um að umræddar beygjuakreinar verði opnaðar að nýju. Meirihluti Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokksins, Flokks fólksins og Vinstri grænna hefur nú fellt tillögu Sjálfstæðisflokksins um að gerðar verði tafarlausar úrbætur á gatnamótum Höfðabakka og Bæjarháls í því skyni að draga úr umferðartöfum þar. Með því sýnir meirihlutinn að vegna kreddufullrar afstöðu til umferðarmála, er hann ekki fær um að horfast í augu við eigin mistök og leiðrétta þau.