Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 22. júlí 2025 ásamt kæru nr. 115/2025, dags. 22. júlí 2025, þar sem kærð er ákvörðun frá 25. júní s.á. um beitingu þvingunarúrræða vegna smáhýsis á lóð nr. 67 við Ásvallagötu. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkur dags. 29. ágúst 2025. Jafnframt er lagður fram bráðabirgðaúrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 1. ágúst 2025. Úrskurðarorð: Frestað er réttaráhrifum ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 25. júní 2025 um að krefjast þess að smáhýsi á lóð nr. 67 við Ásvallagötu verði fjarlægt.