Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn
Veitna ohf.
, dags. 17. júlí 2025, um breytingu á deiliskipulagi Vatnagarða vegna óbyggðar lóðar norðan Vatnagarða 38. Í breytingunni sem lögð er til felst að afmörkuð er ný lóð með staðfangið Vatnagarðar 38A fyrir dreifistöð rafmagns sem m.a. annar þörfum hraðhleðslustöðva við Holtagarða, samkvæmt uppdr. Nordic Office of Architecture, dags. 16. júlí 2025. Tillagan var grenndarkynnt frá 17. september 2025 til og með 15. október 2025. Engar athugasemdir bárust. Erindi er lagt fram að nýju ásamt breyttri tillögu Nordic Office of Architecture, dags. 8. desember 2025.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða breytta tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Vatnagörðum 38.