Hverfisskipulag Kjalarness - Grundarhverfi- og nágrenni - Skipulagslýsing
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 mánuðum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1029
23. september, 2025
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í september 2025, vegna nýrrar hverfisskipulagáætlunar fyrir Grundarhverfi og nágrenni, borgarhluta 10. Skilgreint þéttbýli á Kjalarnesi, Grundarhverfi og næsta nágrenni, afmarkast í stórum dráttum af Vesturlandsvegi til austurs, strandlengjunni til suðurs, til vesturs af línu sem dregin er vestan svokallaðs Hofshverfis frá hafi til Arnarholts og til norðurs af línu sem dregin er frá Vesturlandsvegi rétt norðan gatnamóta Brautarholtsvegar að lóðamörkum Arnarholts.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.