Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 349
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um samþykkt ráðsins, sbr. 32. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 25. júní 2025. Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur óskar eftir því að samþykkt ráðsins verði breytt á þá leið að þar verði kveðið á um að sama fyrirkomulag verði þar viðhaft varðandi boðun funda og útsendingu fundargagna eins og tíðkast hjá öðrum ráðum Reykjavíkurborgar. Það er að miðað verði við a.m.k. tveggja sólarhringa fyrirvara að þessu leyti. Fulltrúar Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og áheyrnarfulltrúi Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi málsmeðferðartillögu: Lagt er til að samþykkt verði að beina því til forsætisnefndar að uppfæra samþykkt ráðsins til að lengja boðunarfrest í 48 klst. Málsmeðferðartillagan er samþykkt.