Tryggvagata 15
Tryggvagata 15
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 mánuðum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1230
4. nóvember, 2025
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að endurnýja og byggja ofaná Grófarhús, breyta innra skipulagi og innrétta fyrir Borgarbókasafnið hús á lóð nr. 15 við Tryggvagötu. Erindi fylgir brunahönnun frá Örugg dags. 23. október 2025, greinargerð um hljóðvist frá Myrru dags. 23. júní 2026, forhönnunarskýrslur frá Eflu um burðarvirki dags. 24. júní 2025 og lagnir og loftræsingu dags. 20. júní 2025 ásamt orkuramma dags. 24. júní 2025. Minnkun: 1.268 ferm., stækkun: 372,4 rúmm. Eftir breytingar: 6.155,5 ferm., 23.735,5 rúmm.
Svar

Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið
eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr.
2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði
við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.