Samþykkt með vísan til a. liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks telja vissulega mikilvægt að ráðast í frekari uppbyggingu leikskóla í Reykjavík en gera fyrirvara við stærð fyrirhugaðs leikskóla við Fossvogsblett. Almennt hefur þótt æskilegt að hafa leikskólaeiningar smærri í sniðum og verður 150 barna leikskóli því að teljast stærri en æskilegt má telja. Fulltrúarnir taka jafnframt undir áhyggjur íbúa af þeirri auknu umferð sem skapast getur með tilkomu leikskólans, ekki síst með hliðsjón af stærð hans.