Granaskjól 18
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 dögum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1257
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að fjölga bílastæðum um eitt og byggja við lóðarmörk að lóð nr. 20, bílskúr, mhl.02, úr timbri, einangraðan og klæddan utan með klæðningu í flokki 1 og tilheyrir íbúð 0201 í fjölbýlishúsi á lóð nr. 18 við Granaskjól. Stærð: 35.7 ferm., 121.5 rúmm. Erindi var grenndarkynnt 8. apríl til 8. maí 2026. Engar athugasemdir bárust. Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa og lóðarhafa aðliggjandi lóða dags. 6, og 28. júlí 2025, mæliblað 1.515.6 dags. 2. nóvember 1954 og afrit af aðaluppdrætti samþykktum 26. maí 1991.
Svar

Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing verði gerð þar sem verið er að gera breytingar á
fjöleignarhúsi. Eignaskiptayfirlýsandi þarf að senda staðfestingu á að byrjað sé að gera
eignaskiptayfirlýsingu á eignaskiptayfirlysing@reykjavik.is fyrir útgáfu byggingarleyfis.
Þinglýsa þarf eignaskiptayfirlýsingu fyrir lokaúttekt.