Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 17. júlí 2025 var lögð fram umsókn
Veitna ohf.
, dags. 5. júní 2025, um framkvæmdaleyfi vegna lagningu nýrrar stofnlagnar vatnsveitu Veitna á um 800 metra löngum kafla á Álfsnesi vestan við Víðines. Einnig eru lagðar fram teikningar Verkís, dags. 16. maí 2025. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 28. ágúst 2025.
Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 28. ágúst 2025.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1381/2024. Þegar greiðsla berst fer málið til skrifstofu stjórnsýslu og gæða til útgáfu framkvæmdaleyfis.