Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að fækka eignum með því að sameina rými 0104 og 0204, breyta innra
skipulagi og innrétta dýralæknastofu með móttökurýmum, skoðunarherbergjum, skurðstofum,
röntgenstofu, hvíld og starfsmannaaðstöðu á millilofti, rými 0221, á 1. og 2. hæð, einnig er
iðnaðarhurð skipt út með glugga á norðurhlið á 1. hæð í iðnaðarhúsi á lóð nr. 45 við Fiskislóð.
Erindi fylgir greinargerð um hönnun dýralæknastofu dags. 5. apríl 2025, samþykki meðlóðarhafa
dags. 20. janúar 2025 og greinargerð Brunahönnunar sfl, um brunavarnir dags. 28. maí 2025 og yfirlit
breytinga á afriti aðaluppdrátta samþykktum 22. maí 2018.