Urðarstígsreitur - (fsp) Breyting á deiliskipulagi - Bergstaðastræti 57
Bergstaðastræti 57
Síðast Synjað á fundi fyrir 8 mánuðum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1017
26. júní, 2025
Synjað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 12. júní 2025 var lögð fram fyrirspurn Óvissu ehf., dags. 4. júní 2025, ásamt bréfi, dags. 4. júní 2025, um breytingu á deiliskipulagi Urðarstígsreits vegna lóðarinnar nr. 57 við Bergstaðastræti, sem felst í að stækka lóðina við gatnamót Bragagötu og Bergstaðastræti, samkvæmt fyrirspurnaruppdr. Óvissu, dags. 4. júní 2025. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 26. júní 2025.
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 26. júní 2026.
Svar

Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 26. júní 2026.