Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 26. júní 2025 var lögð fram fyrirspurn Sigurðar Halldórssonar, dags. 1. júní 2025, ásamt bréfi, dags. 31. maí 2025, um breytingu á deiliskipulagi Laufásvegar 19, 21, 23, Þingholtsstrætis 34, vegna lóðarinnar nr. 21-23 við Laufásveg, sem felst í að endurskoða og einfalda uppbyggingu á lóð, bæta ásýnd húsa og fegra umhverfi, samkvæmt uppdr. Glámu-Kím, ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 30. september 2025. Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 30. september 2025, samþykkt.
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 30. september 2025, samþykkt.