Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 26. júní 2025 var lögð fram umsókn
Veitna ohf.
, dags. 26. maí 2025, um framkvæmdaleyfi vegna færslu á legu Suðuræðar I austur fyrir Breiðholtsbraut og að leggja Suðuræð II samhliða, samkvæmt teikningasetti COWI, dags. 15. maí 2025. Einnig er lögð fram yfirlitsmynd COWI, dags. 25. janúar 2025, umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 17. febrúar 2025, og leyfisveiting Vegagerðarinnar, dags. 28. apríl 2025, vegna lagningu leiðslu/vinnu á vegsvæði Hringbrautar og Breiðholtsbrautar. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 3. júlí 2025.
Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 3. júlí 2025.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1381/2024. Þegar greiðsla berst fer málið til skrifstofu stjórnsýslu og gæða til útgáfu framkvæmdaleyfis.