Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að stækka stofu með viðbyggingu til suðurs og stækka eldhús með því að
minnka þvottahús og fjarlægja sorpgeymslu, einnig er sótt um að stækka eldhúsglugga á norðurhlið
raðhúss við Sæviðarsund 32, mhl.04, á lóð nr. 26-32 við Sæviðarsund.
Stækkun: 21.7 ferm., 170.1 rúmm.
Erindi fylgir samþykki lóðarhafa vegna breytinga á framhlið dags. 7. júlí 2025, ódagsett samþykki
meðlóðarhafa með vísan í aðalteikningar dags. 16. maí 2025 og yfirlit breytinga á afriti aðaluppdrátta
samþykktum 24. september 1964.