Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Reita atvinnuhúsnæðis ehf., dags. 16. maí 2025, ásamt greinagerð VA arkitekta, dags. 15. maí 2025, um breytingu á deiliskipulagi Skútuvogar austur vegna lóðarinnar nr. 5-9 við Skútuvog. Í breytingunni sem lögð er til felst að byggt verði á milli húshluta 5 og 7 og að húshluti 5 verði stækkaður, samkvæmt uppdr. VA arkitekta, dags. 15. maí 2025.
Vísað til meðferðar verkefnastjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1381/2024.