Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 351
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í maí 2025, vegna nýrra deiliskipulagsáætlana og deiliskipulagsbreytinga fyrir Sæbrautarstokk. Til stendur að setja Sæbraut í stokk á um 1 km löngum kafla, frá Miklubraut og norður fyrir gatnamót Kleppsmýrarvegar og Skeiðarvogs. Eitt af markmiðum með gerð vegstokka er að bæta umhverfisgæði í aðliggjandi byggð og tengja betur saman hverfi sem eru aðskilin með umferðarþungum stofnbrautum. Á yfirborði stokksins er fyrirhugaður nýr borgargarður sem myndar græna tengingu milli Vogahverfis og Vogabyggðar. Með tilkomu stokksins verða hljóðvist og loftgæði á svæðinu betri og tækifæri skapast fyrir nýja byggð meðfram austurhluta stokksins. Lýsingin var kynnt frá 5. júní 2025 til og með 3. júlí 2025. Athugasemdir og umsagnir bárust. Umsagnir sem bárust á kynningartíma skipulagslýsingar kynntar fyrir umhverfis- og skipulagsráði. Fulltrúar Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun: Sæbrautarstokkur milli Kleppsmýrarvegar og Miklubrautar mun gjörbreyta aðstæðum á þessum vegkafla til hins betra, bæði fyrir akandi vegfarendur og íbúa í nærliggjandi íbúðahverfum. Grænn almenningsgarður mun tengja hverfin tvö saman sem í dag eru aðskilin af stofnbrautinni og verður það dýrmæt lífsgæðabót fyrir íbúa. Í áframhaldandi vinnu við stokkinn er þarft að skoða nánar útfærslu gatnamóta Kleppsmýrarvegar og Skeiðarvogs við Sæbraut þannig að umfang þeirra verði takmarkað eins og kostur er um leið og óvarðir vegfarendur eru hafðir í öndvegi og öryggi þeirra tryggt. Eins er mikilvægt að skýra betur hvernig unnið verður með hjáleiðir á framkvæmdatíma og áhrif þeirra á núverandi byggð, t.a.m. húsið við Dugguvog 42, sem þekkt er af lágmyndum sínum eftir Gerði Helgadóttur.