Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 351
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 12. maí 2025 ásamt kæru nr. 73/2025, dags. 8. apríl 2025, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa í Reykjavík um að samþykkja umsókn um leyfi til endurbyggingar stálgrindahúss að Grettisgötu 87. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar, dags. 16. júní 2025. Jafnframt er lagður fram bráðabirgðaúrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 20. júní 2025. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um stöðvun framkvæmda til bráðabirgða á grundvelli ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 8. apríl 2025 um að samþykkja umsókn um leyfi til að endurbyggja stálgrindarhús að Grettisgötu 87.