Brautarholt 6
Brautarholt 6
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 mánuðum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1223
16. september, 2025
Samþykkt
‹ 8
9
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN060766, með síðari breytingu USK23110194, vegna lokaúttektar þannig að innra skipulagi í rými 0101 er breytt, skipt er um utanhússklæðningu að hluta og skjólveggjum komið fyrir við svalir á 1. og 2. hæð í skrifstofu- og íbúðarhúsi á lóð nr. 6 við Brautarholt. Erindi fylgir samþykki lóðarhafa, dags. 18. ágúst og og 3. júlí 2025 og yfirlit breytinga á aðaluppdráttum samþykktum 31. janúar 2023 og 13. febrúar 2024.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.
10.Efstasund 49 - USK25070344
Sótt er um leyfi til fyrir áður gerðri íbúð í rými 0001, í eignaskiptayfirlýsingu skilgreind sem
„ósamþykkt séreign", í kjallara íbúðarhúss á lóð nr. 49 við Efstasund.
11.Einimelur 17 - USK25040350
Sótt er um leyfi til að steypa nýjan vegg á lóðarmörkum og byggja skyggni úr stáli og timbri
yfir bílastæði milli bílskúrs, mhl.02, og einbýlishúss, mhl.01 á lóð nr. 17 við Einimel.
Stækkun B- rými: 26.0 ferm.
Erindi hefur verið grenndarkynnt.
Erindi fylgir yfirlit breytinga á afriti aðaluppdráttar samþykktum 25. nóvember 2008.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
12.Engjavegur 13 - USK25080192
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og sameina matshluta tengja saman með
viðbyggingu G-hús, mhl.01 og H-hús, mhl.02, í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum á lóð nr.
13 við Engjaveg.
Stækkun: 43,8 ferm.
Erindi fylgir yfirlit breytinga á ódagsettum skýringaruppdrætti hönnuðar.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
13.Fellsmúli 24 - USK25060181
Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK24030301 þannig að smurstöð er stækkuð á kostnað
dekkjalagers, nokkrir innveggir fjarlægðir og rými sameinuð, innra skipulagi breytt, milliloft
minnkað og flóttaleiðir, brunavarnir, stærðir og skráningartafla uppfærð í iðnaðarhúsi,
mhl.01, á lóð nr. 24 við Fellsmúla.
Erindi fylgir yfirlit breytinga á aðaluppdráttum samþykktum 19. júní 2024.
14.Fellsmúli 26 - USK25060353
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi á tannlæknastofunni Krýnu á 5. hæð í húsi á lóð
nr. 26 við Fellsmúla. Erindi fylgir gátlisti aðaluppdrátta, yfirlit breytinga dags. 7. september
2021 og samþykki frá Geislavörnum ríkisins dags. 24. júní 2025.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
15.Gerðuberg 3-5* - USK25090137
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi á 1. og 2. hæð og innrétta frístundaheimili í
vesturálmu Gerðubergs á lóð nr. 3-5 við Gerðuberg.
16.Grandagarður 10 - USK25080153
Sótt er um leyfi til þessa að breyta innra skipulagi, færa til veggi, endurnýja lagnir og tæki
Kaffivagnsins, veitingahúss í flokki ll, tegund ? fyrir 60 gesti á lóð nr. 10 við Grandagarð.
Erindi fylgir yfirlit breytinga á samþykktum aðaluppdráttum.
17.Grensásvegur 1B - USK25080250
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi í rými 0105 í húsi á lóð nr. 1B við Grensásveg.
18.Heiðargerði 24 - USK25090055
Sótt er um leyfi til að breyta USK24090335 sem snýr að gluggum, svölum og mhl 03 bætt
við á lóð nr. 24 við Heiðargerði.
Erindinu fylgir yfirlit breytinga dags. 10. desember 2024 og mæliblað.
19.Hlésgata 1 - USK25050140
Sótt er um leyfi til að byggja 3-5 hæða fjölbýlishús með 110 íbúðum sem skiptist í sjö
húshluta ofanjarðar með níu stigahúsum á sameiginlegum bílakjallara með 52 bílastæðum
og atvinnurýmum á jarðhæð að Rastargötu, á lóð nr. 1 við Hlésgötu.
Erindi fylgir greinargerð um hljóðvist frá Myrru dags. 6. maí 2025, brunahönnun frá Örugg
dags. 4. júlí 2025 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. júlí 2025.
Stærð: 16.394 ferm., 58.925 rúmm.
20.Hraunbær 115 - USK25080108
Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK23020118 þannig að innra skipulagi er breytt í
rýmum 0101 og 0103 á 1. hæð í heilsugæslu- og þjónustuhúsi á lóð nr. 115 við Hraunbæ.
Erindi fylgir yfirlit breytinga á aðaluppdráttum samþykktum 28. febrúar 2023.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.
21.Hraunbær 2 - USK25080130
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðri ósamþykktri íbúð í rými 0001 í mhl. 01 í húsi nr. 2 við
Hraunbæ.
Erindinu fylgir samþykki eiganda í stigahúsinu dags. janúar 2025, auk hæðar- og
mæliblaðs.
22.Hrefnugata 5 - USK25060047
Sótt er um leyfi til þess að stækka íbúð 0101 með því að hækka ris og útbúa þakhæð
jafnframt því sem óskað eftir að fá samþykkta áður gerða íbúð í kjallara sem séreign í
einbýlishúsi á lóð nr. 5 við Hrefnugötu.
Stækkun: xx.x ferm., xx.x rúmm.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar dags. 11. september 2025 og yfirlit breytinga á afriti
aðaluppdráttar samþykktum 25. nóvember 1938.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
23.Hringbraut Landsp. - USK25040028
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN052751 vegna lokaúttektar þannig að innra skipulagi
er breytt, staðsetningu svala er breytt á suðurhlið 1.- 3. hæðar auk þess sem breytingar
hafa verið gerðar á brunaskilum í Hjúkrunarskólanum við Eiríksgötu 34a, mhl. 07, á lóð
Landspítalans við Hringbraut.
Erindi fylgir yfirlit breytinga á samþykktum aðaluppdráttum.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.
24.Hverfisgata 123 - USK25060228
Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK23090289 vegna lokaúttektar þannig að aðkomu að
kjallara og stiga að vesturhlið 1. hæðar er breytt og glugga komið fyrir á norðurgafli
viðbyggingar, jafnframt er skráningartafla uppfærð fyrir íbúðar- og verslunarhús á lóð nr.
123 við Hverfisgötu.
Erindi USK23090289 er endurnýjun á erindi BN055805, samþykkt 16, apríl 2019 en var
fallið úr gildi.
Erindi fylgir yfirlit breytinga á afriti óstimplaðra aðaluppdrátta dagsettum 3. nóvember 2023.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.
25.Hverfisgata 40A - USK25070361
Sótt er um heimild til þess að breyta innra skipulagi og koma fyrir nýrri rafmagnstöflu á
sportbar, veitingastað í flokki ll tegund f fyrir alls 80 gesti í rýmum 0103, 0104 og 0105 á 1.
hæð í verslunar- og þjónustuhúsi nr. 40A á lóð nr. 40 við Hverfisgötu.
Erindi fylgir bréf frá hönnuði dags. 28. júlí 2025, skýringaruppdráttur 001-B00 dags. 1.
september 2025 og yfirlit breytinga á aðaluppdrætti samþykktum 9. febrúar 2021.
26.Hverfisgata 94 - USK25030454
Sótt er um leyfi til að innrétta rými 0102 í húsi nr. 94 við Hverfisgötu.
Erindi fylgir samþykki eiganda og tölvupóstur með samþykki fyrir staðsetningu sorps á lóð
dags. 15. september 2025.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
27.Kleppsvegur 150 - USK25080203
Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK24100309 vegna lokaúttektar með því að breyta
opnun hurða í kjallara og innra skipulagi á snyrtingu á 1. hæð í leikskóla á lóð nr. 150 við
Kleppsveg.
Erindi fylgir yfirlit breytinga.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.
28.Koparslétta 3 - USK25060386
Sótt er um stöðuleyfi fyrir skúr vegna umbóta í 12 mánuði á lóð nr. 3 við Koparsléttu.
Stærð 7,5 x 3 metrar.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
29.Köllunarklettsvegur 1 - USK25080156
Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK23080236 vegna lokaúttektar með því að breyta
innra skipulagi í verslun og bar, stiga uppá millipall og innra skipulagi á lager í mhl. 01 og
mhl. 10 á lóð nr. 1 við Köllunarklettsveg.
Erindi fylgir yfirlit breytinga.
30.Köllunarklettsvegur 1 - USK25080155
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN059798 vegna lokaúttektar með því að lagfæra
brunavarnir, breyta staðsetningu brunaviðvörunarkerfis og bæta við snyrtingu og skrifstofu
í í kjallara mhl. 01 á lóð nr. 1 við Köllunarklettsveg.
Erindi fylgir yfirlit breytinga.
31.Lindargata 58 - USK25030384
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN055333 með því að breyta notkun í rýmum 0102 úr
vinnustofu í íbúð auk þess er sótt um að breyta útidyrahurð, snúa útistiga, stækka glugga í
kjallara í húsi nr. 58 við Lindargötu.
Erindi fylgir samþykki lóðarhafa fyrir breyttri notkun og fyrirspurn til skipulagsfulltrúa um að
fjölga eignum í húsinu sem ekki voru gerðar athugasemdir við dags. 27.febrúar 2025.
32.Litlagerði 9 - USK25070394
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN057550 vegna lokaúttektar í húsi á lóð nr. 9 við
Litlagerði.
33.Ljárdalur - USK25050015
Sótt er um byggingarleyfi vegna vélageymslu, í framhaldi af máli nr. 994 sem tekið var fyrir
á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 19. desember 2024.
Ekki voru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið en gert var ráð fyrir að umsóknin
yrði grenndarkynnt þegar byggingarleyfisumsókn bærist.
Umsókninni fylgir greinargerð hönnunarstjóra um verksvið hönnuða og samantekt á
umsókn.
34.Lyngháls 3 - USK25090135
Sótt er um leyfi til að innrétta atvinnueldhús í rými 0001 í húsi á lóð nr. 3 við Lyngháls.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 8. september 2025 og yfirlit breytinga.
35.Melhagi 9 - USK24070116
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á innra skipulagi 1. hæðar, grafa frá kjallara
og útbúa dvalarsvæði á suðurhlið fjölbýlishúss á lóð nr. 9 við Melhaga.
Erindi fylgir yfirlit breytinga, samþykki meðeigenda og teikningaskrá.
Lagfæra skráningu.
36.Sigtún 42 - USK25070068
Sótt erum leyfi til að byggja sambyggt hjóla- og sorpskýli á lóð nr. 42 við Sigtún.
37.Skeifan 11A - USK25040440
Sótt er um leyfi til þess að gera nýjan inngang, breyta innra skipulagi og innrétta
útsölustað fyrir bakarí sem hluta af stærra verslunarrými 0102, mhl.02 á lóð nr. 11 við
Skeifuna.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 29. ágúst 2025 og 30. apríl 2025, yfirlýsing um afnot
rýmis dags. 10. september 2025 og yfirlit breytinga á afriti aðaluppdráttar samþykktum 14.
maí 2019.
38.Skerplugata 9 - USK25080210
Sótt er um leyfi til að breyta notkun vinnustofu, mhl.02, í íbúð á lóð nr. 9 við Skerplugötu.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
39.Skógarás 16 - USK25080034
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og útliti, stækka svalir og breyta gluggum í húsi
á lóð nr. 16 við Skógarás.
Lagfæra skráningu.
40.Stefnisvogur 1 - USK25050175
Sótt er um leyfi til að breyta USK24070158 sem snýr að tæknirýmum, sorpgeymslum,
geymslum, útistigum, gólfkótum á jarðhæð/sorpi og yfirborð lægstu lóðar, atvinnurýmum á
jarðhæð, innra fyrirkomulagi nokkurra íbúða, stækkun húss nr.2 þar sem útveggur er færður
til ásamt flóttaleiðum, klæðningu, svalahandriðum og gluggabreytingum í húsum á lóð nr. 1
við Stefnisvog.
41.Suðurlandsbraut 12 - USK25060184
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypta fjögurra hæða viðbyggingu á suðurhlið með 53
herbergjum þannig að herbergi verða 154 og gestafjöldi verður 335 í hóteli, gististað í fl.
V, teg. a, á lóð nr. 12 við Suðurlandsbraut.
Stækkun: 1.345,3 ferm., 3.766,8 rúmm.
Eftir stækkun: 5.523,2 ferm., 18.763 rúmm.
Erindi fylgir orkurammi dags. 27. maí 2025 og greinargerð um brunavarnir frá
Brunahönnun dags. 16. ágúst 2025.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal
vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar
þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við
byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi,
í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum
á byggingarstað.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
42.Suðurlandsbraut 30 - USK25060199
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi á eignarhluta 0102 í húsi á lóð nr. 30 við
Suðurlandsbraut.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
43.Síðumúli 21 - USK25040404
Sótt er um leyfi til þess að fjölga eignum með því að skipta rými 0101 í tvær eignir; rými
0101 og rými 0102, breyta innra skipulagi og innrétta sem tvö sjálfstæð atvinnurými í
verslunar- og skrifstofuhúsi, mhl.01, á lóð nr. 21.
Erindi fylgir ódagsett samþykki meðeigenda og afrit aðaluppdráttar samþykktum 12. mars
1964.
44.Sólvallagata 3 - USK25080154
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum vegna gerðar eignaskiptasamnings og til að
setja svalir á suðurhlið 1. og 2. hæðar í íbúðarhúsi á lóð nr. 3 við Sólvallagötu.
45.Templarasund 3 - USK25020267
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra skipulagi og stækka hótel með því að leggja niður
núverandi veitingarekstur í rýmum 03-0102 og 01-0101og innrétta morgunverðarsal, opna
inn í rými 01-0101 og breyta gestamóttöku hótels við Kirkjutorg 4, mhl.03, og Templarasund
3, mhl.01, á lóð nr. 3 Við Templarasund.
Erindi fylgir yfirlit breytinga á afriti aðaluppdráttar samþykktum 18. mars 2014.
46.Tómasarhagi 15 - USK25080129
Sótt er um heimild fyrir áður gerðum breytingum á eldhúsi og burðarvirki á 1. hæð, til að
breyta innra skipulagi og gera hurð og tröppur úr kjallara og til að koma fyrir sorp- og
útigeymslu við göngustíg til norðvesturs við einbýlishús á lóð nr. 15 við Tómasarhaga.
Erindi fylgir yfirlit breytinga.
47.Vatnsveituv. Fákur - USK24050151
Sótt er um leyfi að byggja stoðvegg Faxaból 12 á lóð við Vatnsveituveg Fákur. Umsögn
skipulagsfulltrúa dags. 30. maí 2024 fylgir erindi.
Erindi fylgir samþykki nágranna ódagsett.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
Kaupsamningur liggur fyrir.
48.Vesturbrún 2 - USK25080157
Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK24080228 þannig að vegna tenginga við lagnir er
gólfkóti hækkaður um 0.7m í bílskúr, mhl.02, á lóð nr. 2 við Vesturbrún.
Erindi fylgir yfirlit breytinga á óstimpluðum aðaluppdráttum.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160/2010.
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.
Fundi slitið kl. 11:39