Samþykkt.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins telur jákvætt að ráðist sé í umbætur á skiptistöðinni í Mjódd enda ljóst að aðstaðan er löngu orðin ófullnægjandi með tilliti til öryggis, aðgengis og vaxandi umferðar. Brýnt er að bregðast við þeim þáttum sem ekki geta beðið. Jafnframt er þó ljóst að hér er um tímabundnar aðgerðir að ræða en ekki heildstæða lausn. Mikilvægt er að þær verði ekki til þess að fresta eða veikja nauðsynlega heildarendurskipulagningu svæðisins. Mjóddin hefur alla burði til að þróast sem öflugur borgarkjarni með bættri þjónustu, byggð og mannlífi, og nauðsynlegt er að skýr framtíðarsýn og tímasett áætlun um slíka uppbyggingu liggi fyrir samhliða þessum framkvæmdum.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Viðreisnar:
Biðstöðin í Mjódd hefur lengi beðið upplyftingar og eru þessar áætlanir faglegar og vonast fulltrúi Viðreisnar eftir að framkvæmdir geti hafist um leið og fer að hlýna. Yfirbyggð biðskýli, gróður og lýsing veita hlýlegri ásýnd sem sannarlega var þörf á. Gaman hefði verið ef afþreyingarsvæði fyrir unga farþega hefði einnig fylgt áætluninni en vonast fulltrúinn eftir að það mál fari einnig í framkvæmd fljótlega. Þá er einnig mikilvægt að skoða vel kosti þess að tengja inn hleðslueiningar fyrir rafmagnsvagna við biðstöðvar sem og heildar upplyftingu Mjóddar sem einnig er komin verulegur tími á að taka til afgreiðslu.