Fyrirspurn
Áheyrnarfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Fulltrúa Viðreisnar hefur borist töluverður fjöldi tilkynninga um hraðakstur við Flúðasel í 109 Reykjavík eftir að breytingar voru gerðar við götuna fyrir nokkru með þeim afleiðingum að hraði hefur aukist töluvert. Miklar umræður hafa verið í hverfahópum um hraðahindranir eða þrengingar. Liggja fyrir einhverjar áætlanir til að taka á þessari stöðu, fjöldi barna gengur um svæðið á leið í skóla og almenn umgengni töluverð.