Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 5. júní 2025 var lögð fram fyrirspurn
DAP ehf.
ásamt bréfi, dags. 29. apríl 2025, um breytingu á deiliskipulagi Húsahverfis vegna lóðarinnar nr. 2 við Gagnveg, sem felst í að heimilt verði að koma fyrir tveimur yfirbyggðum þvottabásum á lóð, samkvæmt uppdr. DAP, dags. 28. apríl 2025. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 14. ágúst 2025.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 14. ágúst 2025, samþykkt.