Ármúli 38
Ármúli 38
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 mánuði síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1240
20. janúar, 2026
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að breyta notkun rýmis 0301 og innrétta íbúð í stað skrifstofu á 3. hæð í verslunar- og skrifstofuhúsi, mhl.02, á lóð nr. 38 við Ármúla. USK25040303 er rafrænt framhald af erindi BN060263 sem jafnframt er dregið tilbaka. Erindi var grenndarkynnt frá 21. nóvember 2025 til og með 19. desember 2025. Engar athugasemdir bárust. Hjálögð er umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. apríl 2023 og 10. júní 2022. Erindi fylgir bréf frá hönnuði dags. 8. júlí 2025 og dags. 21. apríl 2025 og fylgiskjal með skýringum breytinga og samþykki meðlóðarhafa mhl.01, 02 og 03 dags. mars 2025 og yfirlit breytinga á aðaluppdráttum samþykktum 28. júlí 2021.
Svar

Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing er gerð þar sem verið er að gera breytingar á fjöleignarhúsi.
Eignaskiptayfirlýsandi þarf að senda staðfestingu á að byrjað sé að gera eignaskiptayfirlýsingu á
eignaskiptayfirlysing@reykjavik.is fyrir útgáfu byggingarleyfis. Þinglýsa þarf
eignaskipatyfirlýsingu fyrir lokaúttekt.