Síðast Vísað til borgarráðs á fundi fyrir 9 mánuðum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 343
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Lagt er til að umhverfis- og skipulagsráð samþykki tillögu að breytingum á akstri eftirfarandi strætóleiða: 1 . Að leið 4 aki Kringlumýrarbraut í stað þess að taka krók um Háaleitisbraut og Miklubraut 2 . Að leið 25, Spöngin - Gufunes, aki aðskilið í hvora átt fyrir sig. 3 . Að framboð ferða á leið 29, Kjalarnes – Háholt, sé aukið þannig að í boði verði sambærilegur fjöldi ferða og á leið 25, þ.e. á hálftíma fresti virka daga og 8 ferðir á laugardögum og 6 ferðir á sunnudögum. Liður 1: Samþykkt með fimm atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokki fólksins, og Framsóknarflokks gegn tveimur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Liðir 2 og 3: Samþykkt
Svar

Vísað til borgarráðs
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fyrirhuguð breyting á leið 4, Skúlagata-Mjódd, mun hafa í för með sér verulega skerðingu á strætisvagnaþjónustu í Múlahverfi. Við breytinguna mun leiðin hætta að þjóna tíu biðstöðvum í þessu fjölsótta hverfi. Í hverfinu eru margir fjölmennir vinnustaðir, vinsælar verslanir og Fjölbrautaskólinn við Ármúla svo eitthvað sé nefnt. Fyrirhugaðar breytingar á leið 25 og 29 eru til bóta.