Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. maí 2025 var lögð fram fyrirspurn Kanon arkitekta ehf., dags. 16. apríl 2025, ásamt bréfi, dags. 16. apríl 2025, um breytingu á hverfisskipulagi Árbæjar, hluta 7.2, vegna lóðarinnar nr. 117 við Hraunbæ sem felst í uppbyggingu á lóð fyrir blandaða byggð verslunar- og þjónustuhúsnæðis og íbúða, samkvæmt fyrirspurnartillögu
Kanon Arkitekta ehf.
, dags. 16. apríl 2025. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 31. júlí 2025.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 31. júlí 2025, samþykkt.