Breiðholt, hluti 6.3 - Breyting á hverfisskipulagi - Austurberg/Hraunberg
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 vikum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1048
10. febrúar, 2026
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á hverfisskipulagi Breiðholts, hluta 6.3 og skilmálaeining 6.3.27, vegna lóðar við Austurberg/Hraunberg. Uppbyggingarheimildir á lóðinni við Austurberg/Hraunberg voru skilgreindar í hverfisskipulagi Breiðholts sem unnið var í miklu samráði við íbúa. Nýjar tillögur að uppbyggingu á reitnum hafa nú verið felldar betur að nærumhverfinu með vönduðum arkitektúr. M.a. hefur verið létt verulega á byggingamagni lóðarinnar, grænt yfirbragð hennar skýrt og gæði íbúða útfærð nánar. Í tillögunni eru tveir íbúðakjarnar, annars vegar einn með 4-6 íbúðum og annar með 12-16 íbúðum með þjónustu-, verslunar- eða samfélagsrými, ásamt bílastæðum á jarðhæð, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdráttur, dags. 20. júní 2025, br. 8. febrúar 2026. Tillagan var auglýst frá 17. júlí 2025 til og með 28. ágúst 2025. Athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram umsögn/ábending Veitna, dags. 27. ágúst 2025. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. september 2025 og er nú lagt fram að nýju.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.
Hlé var gert á fundinum kl. 13:22 og honum fram haldið miðvikudaginn 11. febrúar kl. 08:30.
Brynjar Þór Jónasson tekur sæti á fundinum að nýju.
Svar

Brynjar Þór Jónasson tekur sæti á fundinum að nýju.