Síðast Vísað til borgarráðs á fundi fyrir 1 viku síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1054
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar, dags. 14. janúar 2026, þar sem tilgreint er að stofnunin geti ekki tekið afstöðu til deiliskipulagsbreytingarinnar fyrir lóðina að Suðurhólum fyrr en brugðist hefur verið við eftirfarandi atriðum: Leita skal umsagna Minjastofnunar Íslands og Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, svara þarf með ýtarlegri hætti þeim aðilum sem gerðu athugasemdir varðandi það græna svæði sem tekið er undir íbúðir og fyrirhugaða breytingu á notkun þess. Einnig er bent á að deiliskipulagsbreytingin byggir á óverulegri breytingu á aðalskipulagi frá 2024 sem hefur ekki tekið gildi. Einnig er lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, dags. 5. mars 2026, umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 17. mars 2026, og umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 24. október 2025, uppf. 19. mars 2026. Lagt fram.