Síðast Vísað til borgarráðs á fundi í gær.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 372
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 20. júní 2025, br. 24. febrúar 2026, að breytingu á hverfisskipulagi Breiðholt, hluti 6.3 og skilmálaeining 6.3.3., vegna lóðar við Krummahóla, ný íbúðalóð án heimilisfangs. Uppbyggingarheimildir á lóðinni við Krummahóla voru skilgreindar í hverfisskipulagi Breiðholts sem unnið var í miklu samráði við íbúa. Nýjar tillögur að uppbyggingu á reitnum hafa nú verið felldar betur að nærumhverfinu með vönduðum arkitektúr. M.a. hefur verið létt verulega á byggingamagni lóðarinnar, grænt yfirbragð hennar skýrt og gæði íbúða útfærð nánar. Í tillögunni eru 6 fjölskylduíbúðir með 3-5 herbergjum í raðhúsum og parhúsi og voru breytingar gerðar eftir samtöl við íbúa og greiningu um hverskonar íbúðir vantar í hverfinu. Tillagan var auglýst frá 17. júlí 2025 til og með 28. ágúst 2025. Athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 24. febrúar 2026.
Svar

Samþykkt sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með þeim breytingum sem koma fram í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. febrúar 2026. Fulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til borgarráðs.